Matthildur með nýtt Íslandsmet í 60m hlaupi



Frjálsíþróttakonan Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, ÍFR, setti á dögunum nýtt Íslandsmet í 60m hlaupi í flokki T37 er hún kom í mark á tímanum 9,57 sek. Bætt Matthildur þar með rúmlega eins árs gamalt Íslandsmet sitt sem var 9,61 sek. en nýja metið setti Matthildur á Reykjavíkurmeistaramóti 15 ára og eldri.

Fimm frjálsíþróttakonur úr röðum fatlaðra tóku þátt í mótinu en hin 14 ára gamla Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, Fjölnir, setti nýtt persónulegt met í 60m hlaupi á tímanum 10,33 sek og þá er gaman að segja frá því að Ingeborg Eide Garðarsdóttir er komin á fulla ferð á nýjan leik eftir meiðsli og hljóp 60 metrana á 10,97 sek en allar keppa þær Matthildur, Bergrún og Ingeborg í sama flokki, flokki 37.

Hulda Sigurjónsdóttir, Suðri, tók svo þátt í kúluvarpi en hennar lengsta kast var 8,98 metrar á mótinu og systir hennar Sigríður Sigurjónsdóttir, Suðri, átti lengsta kast 5,44 m.

Myndband frá Íslandsmeti Matthildar í 60m hlaupi


Mynd/ Matthildur Ylfa á HM fatlaðra í frjálsum sumarið 2013