Íslandsmót ÍF fara fram með breyttu sniði þetta árið en mótshlutar fara fram bæði í Reykjavík og á Akureyri. Að þessu sinni fara boccia, borðtennis og lyftingar fram á Akureyri helgina 11.-13. apríl í tilefni að 40 ára afmæli Akurs. Sund og frjálsar fara fram í Reykjavík helgina á undan eða dagana 5.-6. apríl. Sjá dagskrá Íslandsmótanna hér að neðan.
5. apríl: Íslandsmót ÍF í frjálsum (Reykjavík)
5.-6. apríl: Íslandmót ÍF í sundi (Reykjavík)
11.-13. apríl: Íslandsmót ÍF í boccia, borðtennis og lyftingum (Akureyri)
Skráningar og ítarlegri upplýsingar um Íslandsmót ÍF 2014 verða send út þegar nær dregur mótum.