Bikarkeppni ÍF í sundi 7. júní



Bikarkeppni Íþróttasambands fatlaðra í sundi fer fram þann 7. júní næstkomandi. Síðustu ár hefur mótið farið fram á Akureyri en í sumar mun mótið fara fram á Reykjavíkursvæðinu. Nánari upplýsingar um mótið verða sendar þegar nær dregur en sjálfur keppnisdagurinn er staðfestur 7. júní.

Íþróttafélagið Fjörður úr Hafnarfirði hefur unnið bikarkeppnina síðast liðin sex ár og urðu síðasta sumar fyrsta félagið til þess að vinna hinn stóra og myndarlega Blue Lagoon bikar sem gefinn var af Bláa Lóninu.

Verkefnalisti ÍF 2014