Kolbrún setti nýtt met á RIG



Sundhluti fatlaðra á Reykjavík International Games fór fram um síðastliðna helgi í Laugardalslaug. Á mótinu var sett eitt nýtt met en það gerði Kolbrún Alda Stefánsdóttir Fjörður/SH.

Kolbrún bætti sitt eigið met í 100m baksundi þegar hún kom í bakkann á tímanum 1:20,59 mín. Kolbrún var einnig stigahæsti sundmaður kvenna á mótinu með 681 stig fyrir 200m skriðsund og þá var Jón Margeir Sverrisson stigahæsti sundmaður karla á mótinu með 859 stig í 200m skriðsundi karla.

Úrslit RIG 2014