Kolbrún jafnaði Birki og vann Sjómannabikarinn fjórða árið í röð



Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fór fram í Laugardalslaug í dag. Kolbrún Alda Stefánsdóttir vann besta afrek mótsins og hlaut fyrir það hinn eftirsótta Sjómannabikar. Þetta var fjórða árið í röð sem Kolbrún vinnur Sjómannabikarinn og þar með jafnaði hún Birki Rúnar Gunnarsson sem einnig vann Sjómannabikarinn fjórum sinnum í röð árin 1991-1994.

Heiðursgestur mótsins var Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra.

Kolbrún hlaut flest stig fyrir eitt sund er hún setti nýtt Íslandsmet í 50m bringusundi. Fyrir sundið fékk hún 701 stig en stigin eru reiknuð út frá ríkjandi heimsmeti í flokki Kolbrúnar sem syndir í flokki þroskahamlaðra (S14).

Með þessu hefur Kolbrún Alda nú lokið þátttökum sínum á Nýárssundmótum fatlaðra barna og unglinga sem eru fyrir sundmenn 17 ára og yngri. Nýtt nafn verður því greypt í Sjómannabikarinn eftirsótta að ári liðnu.

Mynd/ Jón Björn - Kolbrún Alda Stefánsdóttir með sigurlaunin í Laugardalslaug í dag.