Helgi áttundi í kjöri Íþróttamanns ársins


Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er íþróttamaður ársins 2013. Gylfi hlaut 446 stig í kjörinu en frjálsíþróttakonan Aníta Hinriksdóttir hafnaði í 2. sæti og handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hafnaði í 3. sæti. Helgi Sveinsson, Ármann, var á topp tíu listanum í kjöri Samtaka Íþróttafréttamanna og hafnaði í 8. sæti með 62 stig.

Helgi varð síðastaliðið sumar heimsmeistari í spjótkasti og setti nýtt heimsmótsmet í greininni á Heimsmeistaramóti fatlaðra sem fram fór í Lyon í Frakklandi.

Helgi og sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, voru bæði viðstödd hóf ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna og tóku þar bæði við viðurkenningum sem íþróttamaður- og kona ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra.




















Þeir íþróttamenn sem fengu stig:


1. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna – 446 stig
2. Aníta Hinriksdóttir, frjálsar – 288 stig
3. Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti – 236 stig
4. Jón Arnór Stefánsson, körfubolti – 206 stig
5. Kolbeinn Sigþórsson, knattspyrna – 189 stig
6. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna – 134 stig
7. Alfreð Finnbogason, knattspyrna – 73 stig
8. Helgi Sveinsson, íþr. fatlaðra – 62 stig
9. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar – 41 stig
10. Aron Pálmarsson, handbolti – 32 stig
 
11. Jóhann Rúnar Skúlason, hestaíþróttir – 23 stig
12. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund – 16 stig
13. Norma Dögg Róbertsdóttir, fimleikar – 15 stig
14. Birgir Leifur Hafþórsson, golf – 15 stig
15. Guðbjörg Gunnarsdóttir, knattspyrna – 14 stig
16. Guðmundur Sverrisson, frjálsar – 11 stig
17. Helena Sverrisdóttir, körfubolti – 7 stig
18. Dominiqua Alma Belanyi, fimleikar – 4 stig
19. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund – 4 stig
20. Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna – 3 stig
21. Þóra Björg Helgadóttir, knattspyrna – 3 stig
22. Valdís Þóra Jónsdóttir, golf – 2 stig
23. Þórir Ólafsson, handbolti – 1 stig

Mynd/ Jón Björn Ólafsson - Helgi við hóf samtaka Íþróttafréttamanna og ÍSÍ í Gullhömrum þann 28. desember 2013.