Helgi íþróttakarl Reykjavíkur 2013



Helgi Sveinsson sópar til sín viðurkenningunum þessa dagana en miðvikudaginn 18. desember var hann útnefndur íþróttakarl Reykjavíkur 2013. Þegar hefur Helgi verið útnefndur íþróttamaður Íþróttasambands fatlaðra þetta árið sem og Íþróttamaður Ármanns. Aníta Hinriksdóttir frjálsíþróttakona úr ÍR var svo útnefnd íþróttakona Reykjavíkur 2013.

Jón Margeir Sverrisson var einnig tilnefndur í kjörinu en bæði hann og Helgi fengu viðurkenningar fyrir árangur sinn á árinu. Helgi varð heimsmeistari í spjótkasti í flokki F42 og setti heimsmeistaramótsmet og Jón Margeir vann til siflurverðlauna á HM fatlaðra í sundi í 200m skriðsundi og setti nýtt Evrópumet og 45 ný Íslandsmet á árinu.

Mynd/ Félagarnir Helgi og Jón við móttökuna í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 18. desember síðastliðinn.