Helgi Sveinsson og Thelma Björg Björnsdóttir Íþróttafólk ársins 2013



Helgi Sveinsson er íþróttamaður ársins 2013 úr röðum fatlaðra og Thelma Björg Björnsdóttir er íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra. Helgi og Thelma eiga bæði glæsilegt ár að baki en Helgi varð heimsmeistari í spjótkasti á Heimsmeistaramótinu í Lyon í Frakklandi í flokki F42 og Thelma skipaði sér á sess með fremstu sundkonum heims í flokki S6 og setti fjöldan allan af nýjum og glæsilegum Íslandsmetum. Þetta er í fyrsta sinn sem báðir íþróttamenn hljóta nafnbótina Íþróttamaður- og kona ársins úr röðum fatlaðra. Þá er þetta í fyrsta sinn síðan 2006 sem frjálsíþróttamaður verður íþróttamaður ársins. Helgi er frjálsíþróttamaður hjá Ármanni en Thelma sundkona úr röðum ÍFR.

Í sautjánda sinn eignast ÍFR nú íþróttakonu ársins en í annað sinn eignast Ármenningar frjálsíþróttamann á þessum lista.

Nánar um árangur Helga Sveinssonar
Nánar um árangur Thelmu Bjargar Björnsdóttur

Þá hlaut Kolbeinn Tumi Daðason Hvataverðlaun ÍF sem veitt voru í fyrsta sinn en Hvataverðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasamtökum, stofnun, fyrirtæki eða öðrum aðilum sem á framsækinn hátt hafa unnið í þágu íþróttastarfs fatlaðra á árinu. Kolbeinn Tumi frumsýndi heimildarmynd sína í ársbyrjun „Ef ég hef trú á því þá get ég það“ en þar er fylgst með sundkappanum Jóni Margeiri Sverrissyni þar sem hann varð Ólympíumótsmeistari í 200m skriðsundi þroskahamlaðra.


Fylgist með okkur á Facebook

Íþróttafólk ársins úr röðum fatlaðra frá upphafi:

2013: Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR (sund) og Helgi Sveinsson, Ármann (frjálsar)
2012 Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, ÍFR (frjálsar íþróttir) og Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir (sund)
2011 Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Fjörður (sund) og Jón Margeir Sverrisson, Ösp/Fjölnir (sund)
2010 Erna Friðriksdóttir, Höttur Eglisstöðum (vetraríþróttir) og Jón Margeir Sverrisson, Ösp (sund)
2009 Sonja Sigurðardóttir, ÍFR (sund) og Eyþór Þrastarson, ÍFR (sund)
2008 Sonja Sigurðardóttir, ÍFR (sund) og Eyþór Þrastarson, ÍFR (sund)
2007 Karen Björg Gísladóttir, Fjörður (sund) og Jóhann Rúnar Kristjánsson, Nes (borðtennis)
2006 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Jón Oddur Halldórsson, Reynir Helliss. (frjálsar íþróttir)
2005 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Jón Oddur Halldórsson, Reynir Helliss. (frjálsar íþróttir)
2004 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Gunnar Örn Ólafsson, Ösp (sund)
2003 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Jón Oddur Halldórsson, Reynir Helliss. (frjálsar íþróttir)
2002 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Gunnar Ö. Ólafsson, Ösp (sund)
2001 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Bjarki Birgisson, ÍFR (sund)
2000 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Einar Trausti Sveinsson, Kveldúlfi  (frjálsar íþróttir)
1999 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Geir Sverrisson, Ármanni (frjálsar íþróttir)
1998 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Pálmar Guðmundsson, ÍFR (sund)  
1997 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund)
1996 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund)
1995 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund)
1994 Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp (sund)
1993 Geir Sverrisson, Ármanni (frjálsar íþróttir)
1992 Ólafur Eiríksson, ÍFR (sund)
1991 Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp (sund)
1990 Ólafur Eiríksson, ÍFR (sund)
1989 Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp (sund)
1988 Haukur Gunnarsson, ÍFR (frjálsar íþróttir)
1987 Haukur Gunnarsson, ÍFR (frjálsar íþróttir)
1986 Haukur Gunnarsson ÍFR (frjálsar íþróttir)
1985 Ína Valsdóttir, Ösp (sund)
1984 Jónas Óskarsson, Völsungi (sund)
1983 Sigurður Pétursson Ösp (sund)
1982 Elísabeth Vilhjálmsdóttir, ÍFR (bogfimi)
1981 Arnór Pétursson, ÍFR (lyftingar)
1980 Sigurrós Karlsdóttir, Akur (sund)
1979 Edda Bergmann, ÍFR (sund)
1978 Arnór Pétursson, ÍFR (lyftingar)
1977 Hörður Barðdal, ÍFR (sund)