Kolbrún Alda bætti 14 ára gamalt met Báru



Íslandsmót ÍF í 25m laug fór fram í Ásvallalaug um síðastliðna helgi. Fjöldi nýrra Íslandsmeta leit dagsins ljós og þá féll 14 ára gamalt met í flokki þroskahamlaðra kvenna þegar Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Fjörður/SH, bætti met Báru Bergmann Erlingsdóttur frá árinu 1999.

Hin 42 ára gamla Bára Bergmann lætur deigan ekki síga og tók þátt í mótinu um síðastliðna helgi, glæsileg fyrirmynd fyrir unga íþróttamenn og ómetanlegt að hafa viðlíka reynslubolta ennþá við iðkun íþrótta.

Kolbrún Alda var í miklum ham um helgina og setti fimm ný Íslandsmet og það fimmta og síðasta kom í gær, sunnudaginn 24. nóvember, þegar hún stórbætti gamla Íslandsmetið hennar Báru í 400m fjórsundi. Gamla metið hennar Báru var 6:21,82 mín. en Kolbrún Alda synti á tímanum 5:50,69 mín. og kom metið í mótshluta SSÍ. Kolbrún var annar tveggja fatlaðra sundmanna sem keppti á SSÍ mótinu en ÍF og SSÍ héldu bæði sín 25m mót um helgina í Ásvallalaug.

Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, var hinn sundmaðurinn sem keppti á móti SSÍ og setti sjö ný Íslandsmet svo það er deginum ljósara að sundfólk úr röðum fatlaðra var í miklum ham um síðastliðna helgi.

Mynd/ Jón Björn Ólafsson - Hér mætast fortíð og nútið, Bára Bergmann, Ösp, t.v. og Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Fjörður/SH, t.h.