ÍM 25 í beinni á Sport TV



Íslandsmót SSÍ og ÍF í 25m laug fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um komandi helgi. Keppt verður föstudag, laugardag og sunnudag og mun Sport TV vera með beinar netútsendingar frá mótinu.

Á laugardag og sunnudag munu fatlaðir sundmenn keppa á Íslandsmóti sínu í 25m laug á milli keppnishluta SSÍ svo gera má ráð fyrir mikilli umferð í lauginni þessa helgina.
 
Á föstudag verður Sport TV með beina útsendingu frá úrslitum á móti SSÍ sem hefjast kl. 17:00. Á laugardag hefst útsending kl. 12:00 þar sem sýnt verður frá keppni fatlaðra og að henni lokinni verður gert hlé uns komið er að úrslitum hjá SSÍ sem hefjast kl. 17:00.
Á sunnudag verður einnig sýnt frá mótshluta fatlaðra frá kl. 12:00 og að honum loknum hlé uns útsendingar hefjast frá úrslitum SSÍ kl. 17:00.
 
Fylgist með fremsta sundfólki þjóðarinnar um helgina á http://sporttv.is/

Hér má svo nálgast mótaskrá helgarinnar (sundhluti fatlaðra)