Í dag eru 25 ár síðan þau Haukur Gunnarsson, ÍFR, og Lilja María Snorradóttir, Tindstóll, unnu til gullverðlauna á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fór í Seoul í Suður-Kóreu.
Haukur vann gullverðlaun í 100m hlaupi í flokki sem þá hét C7 sem er flokkur spastískra en í dag ber sá flokkur nafnið T37 og í honum keppir m.a. frjálsíþróttakonan Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir í dag. Íslandsmet Hauks á 12,88 sek. í Seoul stendur enn í flokki T37!
Lilja María Snorradóttir vann til gullverðlauna í flokki A2 sem í dag er flokkur S9 í sundi en hún sigraði þá í 200m fjórsundi. Íslandsmetið hennar í greininni stendur enn en það setti Lilja fjórum árum eftir mótið í Seoul eða á Ólympíumótinu í Barcelona 1992.
Aðrir sem unnu til verðlauna á þessu Ólympíumóti í Seoul voru Jónas Óskarsson ÍFR/Völsungur með silfur í sundi, Geir Sverrisson UMFN með silfur í sundi, Ólafur Eiríksson ÍFR með tvö bronsverðlaun í sundi og Sóley Axelsdóttir ÍFR með ein silfurverðlaun í sundi.
Mynd/ Samsett mynd af Lilju og Hauki en svona líta hetjurnar út í dag.