Íþróttaskóli Fjarðar og Latabæjar



Íþróttafélagið Fjörður mun í vetur standa að íþróttaskóla Fjarðar og Latabæjar fyrir tveggja til átta ára gömul börn með þroska- eða hreyfihömlun. Íþróttaskólinn verður starfræktur í Íþróttahúsi Setbergsskóla á laugardögum í vetur.
 
Skráning og nánari upplýsingar á www.fjordur.com og í síma 6959185. Solla stirða og Íþróttaálfurinn mæta í fyrsta tímann þann 5. október næstkomandi.