Ólympíumótið í Tokyo 2020



Ólympíuleikarnir og Ólympíumót fatlaðra munu fara fram í Tokyo í Japan árið 2020. Þrjár borgir sóttu um að halda leikana, Tokyo, Madríd á Spáni og Istanbúl í Tyrklandi. Þetta var gert opinbert eftir kosningu í Buenos Aries í Argentínu fyrr í mánuðinum.

Það verður vandasamt verk fyrir Brasilíumenn að halda þessi tvö stórmót árið 2016 og einnig verður það raunin fyrir Tokyo 2020 enda hafa leikarnir í Peking 2008 og London 2012 vakið verðskuldaða athygli.

Mynd/ Japanir fögnuðu vel og innilega við kosninguna sem fram fór í Buenos Aries þann 7. september.