Sundmennirnir Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir settu saman þrjú ný Íslandsmet í morgun þegar keppt var í undanrásum á lokakeppnisdegi heimsmeistaramóts fatlaðra í sundi í Montréal, Kanada. Bæði kepptu þau í undanrásum í 200m fjórsundi S14. Jón komst í úrslit en Kolbrún var afar nærri að komast inn en hafnaði í 10. sæti. Þau Hjörtur Már Ingvarsson og Thelma Björg Björnsdóttir kepptu einnig í undanrásum í 100m skriðsundi og komust bæði í úrslit.
Hjörtur Már var fyrstur af stað í morgun í 100m skriðsundi S6 og kom í bakkann á 1:34,62 mín. sem dugði honum inn í 8. sæti keppninnar og því syndir Hjörtur til úrslita í kvöld kl. 17:23 að staðartíma eða kl. 21:23 að íslenskum tíma. Thelma Björg fór svo í undanrásir í 100m skriðsundi S6 kvenna og kom í mark á tímanum 1.27,34 mín. sem dugði henni líkt og Hirti inn í úrslit í 8. sæti.
Jón Margeir Sverrisson setti nýtt Íslandsmet í 200m fjórsundi S14 karla er hann synti á tímanum 2.20,49 mín. sem er rúmlega þriggja sekúndna bæting á Íslandsmeti hans sem sett var fyrr á þessu ári. Jón var þriðji inn í úrslitin í kvöld en félagi hans og Hollendingurinn Marc Evers var með langbesta tímann í undanrásum í morgun, 2:14,97 mín. Millitíminn í 50m. flugsundi hjá Jóni var einnig nýtt Íslandsmet en það synti hann á 27,44 sek.
Kolbrún Alda Stefánsdóttir setti svo nýtt Íslandsmet í 200m fjórsundi S14 þegar hún synti á tímanum 2:44,26 mín. og hafnaði í 10. sæti. sem þýðir að hún verður varamaður í úrslitum í kvöld.
Mynd/ Kolbrún Alda fagnaði Íslandsmetinu sínu og er varamaður í úrslitum í kvöld.