Þrír íslenskir sundmenn létu að sér kveða í morgun í undanrásum í 100m bringusundi á heimsmeistaramóti fatlaðra sem nú stendur yfir í Montréal í Kanada. Thelma Björg Björnsdóttir SB5 komst í úrslit á nýju og glæsilegu Íslandsmeti en þau Jón Margeir Sverrisson (10. sæti) og Kolbrún Alda Stefánsdóttir (12. sæti) komust ekki inn í úrslit í 100 bringu í kvöld.
Thelma varð áttunda og síðustu inn í úrslitin í kvöld á 2.08.85mín sem er nýtt Íslandsmet í SB5 flokki sem og millitíminn hennar á 50metrum sem var 1.02.15mín. Frábær frammistaða hjá ÍFR dömunni sem er að finna sig vel hér í Kanada.
Í 100m bringusundi S14 karla kom Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, í mark á tímanum 1.14.17mín og hafnaði í 10. sæti. Kolbrún Alda Stefánsdóttir SH/Fjörður var næst á sviðið strax í næsta sundi og kláraði á tímanum 1.28.10mín en millitími hennar í 50 metrum, 40,93 sek, er nýtt Íslandsmet. Thelma Björg syndir svo aftur í úrslitum í kvöld kl. 17:22 að staðartíma eða kl. 21.22 að íslenskum tíma.
Til þessa hefur dagurinn því þrjú ný Íslandsmet í för sér og verður fróðlegt að fylgjast með Thelmu í úrslitum í kvöld en hægt verður að fylgjast með í beinni netútsendingu á tengli sem er aðgengilegur hér ofarlega til vinstri á heimasíðunni. Eins getið þið fylgst grannt með íslenska hópnum á Facebook-síðu ÍF.