Thelma Björg Björnsdóttir hóf daginn á HM í Montréal með látum og lauk honum einnig á háu nótunum þegar hún hafnaði í 8. sæti í 100m bringusundi í flokki SB5. Thelma setti tvö ný Íslandsmet í undanrásum í morgun og slíkt hið sama gerði hún aftur í kvöld í úrslitum!
Þessi 17 ára gamli sundmaður frá ÍFR synti í kvöld til úrslita með hinni margfrægu Kirsten Bruhn frá Þýskalandi en Bruhn tók við alþjóðlega sunddrottningarsportanum þegar Kristín Rós Hákonardóttir lagði sundhettuna á hilluna á sínum tíma.
Í úrslitum í kvöld synti Thelma á 2:08,56 mín. en í undanrásum í morgun synti hún á 2:08,85 mín. en báðir tímarnir voru Íslandsmet og engin smá bæting því Anna Kristín Jensdóttir stalla Thelmu úr ÍFR átti metið í greininni sem var 2:22,60 og hafði staðið síðan 2010. Þá í undanrásum var Thelma svo að slá 20 ára gamalt met Sóleyjar Bjarkar Axelsdóttur í 50m bringusundi SB5 sem staðið hafði síðan 1993 og sett var á móti í Gautaborg og var 1:04,72 mín. en Thelmu tími var 1:02,15 mín.
Í úrslitum synti Thelma svo á 2:08,56 mín. og bætti metið sitt síðan í undanrásum og fyrri 50 metrarnir voru svakalegir eða 59,72 sek!
Mynd/ Thelma Björg Björnsdóttir setti fjögur Íslandsmet í dag!