Fimm Íslandsmet hjá Hirti



Það er óhætt að segja að Hjörtur Már Ingvarsson, Fjörður, hafi verið í stuði í 200m skriðsundi í flokki S5 í Montréal í Kanada. Hjörtur setti fimm ný Íslandsmet í undanrásum og úrslitum og hafnaði í 7. sæti í greininni.

Í undanrásum setti Hjörtur tvö ný met þegar hann synti á 3.16.49mín. en metin voru á millitímum í 50m og 100m skriðsundi. Í úrslitum fór Þorlákshafnarjakinn einfaldlega á kostum og synti á 3.10.84mín. og stórbætti Íslandsmetið sitt um tæpar sex sekúndur!

Sundið í úrslitum var einnig met í 50m, 100m og 200m skriðsundi og af því tilefni skartaði Hjörtur þessari fimmu á myndinni í anda Georgs Bjarnfreðarsonar.

Met Hjartar í dag:

Undanrásir

50m - 43,91 sek
100m - 1.33,44 mín

Úrslit
50 m - 43,74 sek
100m - 1.31.62 mín
200m - 3.10.84 mín

Mynd/ Hjörtur Már var að vonum himinlifandi með afrakstur dagsins á heimsmeistaramótinu í Montréal en á meðfylgjandi mynd hefur hann nýlokið við að synda sig niður.