Jón og Thelma í úrslit



Jón Margeir Sverrisson og Thelma Björg Björnsdóttir komust áðan í úrslit í sínum greinum að loknum undanriðlum á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi í morgun. Jón Margeir synti á 2.00.08mín. í 200m skriðsundi í flokki S14 karla og Thelma Björg kom í bakkann á tímanum á 6.21.09mín. í 400m skriðsundi í flokki S6 kvenna.

Úrslitin hjá Thelmu hefjast kl. 17:09 að staðartíma eða kl. 21.09 að íslenskum tíma og mun Thelma synda á braut nr. 2. Með Thelmu í úrslitum er hin margfræga Eleanor Simmonds sem fór hamförum á heimavelli á Ólympíumótinu í London 2012 en Simmonds á einmitt heimsmetið í greininni sem er 5.19.17mín.

Jón Margeir syndir kl. 20:26 að staðartíma eða kl. 00:26 að íslenskum tíma en Jón Margeir á Ólympíumótsmetið í greininni en Ástralinn Daniel Fox sem varð þriðji inn í úrslit í morgun á heimsmetið sem er 1.58.42mín. Kóreumaðurinn Cho Wonsang átti besta tímann í undanrásum í morgun er hann synti á tímanum 1.59,82mín.

Kolbrún Alda Stefánsdóttir varð ellefta í undanrásum í 200m skriðsundi í flokki S14 og komst því ekki í úrslit en hún synti á 2.23.06mín.

Úrslitin í dag eru í beinni netútsendingu sem nálgast má hér á forsíðu ifsport.is en tengillinn er hér ofarlega til vinstri.

Svipmyndir frá undanrásunum í morgun/ Myndir Sverrir Gíslason