Eftir nokkuð myndarlegt ferðalag í gær er íslenski HM hópurinn við það að ná áttum í Montréal í Kanada. Heimsmeistaramót fatlaðra í sundi 2013 hefst næsta mánudag en það er fyrsti keppnisdagur. Hér vinstra megin á forsíðunni má svo nálgast tengil á beinar netútsendingar frá mótinu.
Í dag fór fram fyrsta æfingin og kváðu sundmennirnir laugina nokkuð kalda. Heimsmeistaramótið fer fram í Parc Jean-Drapeau hér í Montréal í Kanada en einmitt á þessum sama stað fór heimsmeistaramótið 2005 fram hjá ófötluðum. Heimamenn í Montréal eru ekkert að spara sig þegar kemur að lýsingu í keppnislauginni, hún var pöntuð inn alla leið frá Hollywood og ku þykja móðins þessi dægrin. Keppnislaugin er útilaug sem búið er að tjalda yfir. Lýsingin verður ekki með ósvipuðu sniði og menn þekkja t.d. í mjúkhýsinu í Hveragerði þar sem ljósunum er beint upp í hvítt dúkaklætt loftið.
Einnig er hægt að fylgjast grannt með gangi mála á Facebook-síðu ÍF