HM hópurinn kom til landsins í dag



Íslensku keppendurnir sem síðustu tíu daga hafa tekið þátt í heimsmeistaramótinu í Lyon í Frakklandi eru komin aftur til landsins. Það voru Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Íþróttasambands fatlaðra og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ sem tóku á móti íslenska hópnum í Leifsstöð í dag.

Með í för var vitaskuld nýkrýndur heimsmeistari Helgi Sveinsson en hann vann gull í spjótkasti aflimaðra (flokkur F42) er hann kastaði spjótinu 50,98 metra sem er bæði nýtt og glæsilegt Íslandsmet og heimsmeistaramótsmet en fyrra metið var sett í Bretlandi árið 1998 og því var Helgi að slá 15 ára gamalt met í flokknum.

Árangurinn lét ekki á sér standa ytra, Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir (F/T37) keppti í fjórum greinum og setti þrjú ný Íslandsmet. Arnar Helgi Lárusson (T53) keppti í tveimur greinum og setti eitt nýtt Íslandsmet og Helgi Sveinsson keppti í spjótkasti og afrek hans bæði Íslands- og heimsmeistaramótsmet, 50,98 metrar.

Mynd/ Frá Leifsstöð í dag, frá vinstri: Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF, Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir ÍFR, Kristjana Kjartansdóttir nuddari og fararstjóri, Kári Jónsson landsliðsþjálfari í frjálsum, Helgi Sveinsson Ármann, Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fyrir miðju er Arnar Helgi Lárusson Nes.