Arnar Helgi Lárusson átti risavaxna bætingu á sínu eigin Íslandsmeti í dag þegar hann keppti í 200m hjólastólakappakstri á HM í Lyon í Frakklandi. Arnar Helgi komst ekki inn í úrslitin en bætti Íslandsmet sitt um 4,02 sekúndur!
Ríkjandi met Arnars var 38,70 sek. fyrir keppnina í dag en hann kom svo í mark á tímanum 34,68 sek. Frábær bæting hjá Arnari sem hefur tekið stórstigum framförum í greininni síðustu misseri en hann er um þessar mundir eini Íslendingurinn sem stundar hjólastólakappakstur.
Á morgun fá íslensku keppendurnir frí en á fimmtudag verður Helgi Sveinsson á ferðinni í spjótkasti í flokki F42 en Helgi hafnaði í 5. sæti á Ólympíumóti fatlaðra í London á síðasta ári. Þá verður Arnar Helgi einnig á ferðinni á fimmtudag og keppir þá í sinni síðustu grein á HM, 100m spretti.
Mynd/ Arnar Helgi er til vinstri á myndinni í græna stólnum, hér er 200 metra keppnin nýfarin af stað í Lyon fyrr í dag.