Annað Íslandsmet hjá Matthildi



Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir setti í morgun annað Íslandsmet á Heimsmeistaramótinu í Frakklandi þegar hún kom í mark á tímanum 15,70 sek. í 100m hlaupi í flokki T37 (flokki spastískra).

Matthildur hafnaði engu að síður í fimmtánda og síðasta sæti í 100 metra hlaupinu  en það er deginum ljósara að þessi öfluga frjálsíþróttakona er í stöðugri bætingu. Ríkjandi Íslandsmet Matthildar var 15,73 sek. sem staðið hafði frá því í júní 2012.

Matthildur hefur nú keppt í tveimur greinum á HM og í hvorugt skipti náð inn í úrslit en í bæði 200m hlaupi og 100m hlaupinu sem fram fór í morgun er hún að bæta sinn besta árangur og því tvö ný Íslandsmet komin í hús. Matthildur á enn tvær greinar eftir ytra en það eru langstökk og 400m hlaup.

Í dag er röðin einnig komin að Arnari Helga Lárussyni þegar hann tekur þátt í 200m hljólastólakappakstri en Arnar er í fyrri riðlinum af tveimur og keppir kl. 17:06 að staðartíma eða kl. 15:06 að íslenskum tíma.

Hægt er að fylgjast með HM í Lyon á Youtube-rás IPC

Einnig er hægt að fylgjast með íslensku keppendunum á Facebook-síðu ÍF: https://www.facebook.com/IthrottasambandFatladra

Mynd/ Matthildur Ylfa er komin með tvö Íslandsmet í Lyon og á enn eftir að keppa í tveimur greinum.