Nýjasta tölublað Hvata er komið út



Hvati, tímarit Íþróttasambands fatlaðra er kominn út, fyrsta tölublað þessa árs er þegar farið í dreifingu og þar kennir ýmissa grasa. Á meðal efnis er viðtal við Beth Fox sem á dögunum hlaut Cobb Partnership Awards fyrir sína aðkomu að skíðaíþróttum fyrir fatlaða á Íslandi.

„Reimum okkar besta“ er einnig gert góð skil og fjölbreytt efni má finna í þessu nýjasta tölublaði Hvata. Innan skamms verður hægt að nálgast rafræna útgáfu af tímaritinu hér á heimsíðunni undir hnappnum „Fræðsluefni“ en þar má einnig finna eldri útgáfur Hvata. Prentuð eintök tímaritsins er svo hægt að nálgast á skrifstofum ÍF í Laugardal.