Eins og fram hefur komið hleypur hinn tékkneski René Kujan aleinn yfir hálendi Íslands til styrktar Hollvinum Grensásdeildar og Íþróttasambandi fatlaðra. Fyrir ári hljóp René hringinn í kringum landið og þá einnig til styrktar fötluðum en þótt mörgum hafi þótt nóg um framgöngu hans þá með því að hlaupa eitt maraþon á dag er hlaupið í ár enn meira krefjandi.
Hlaupið sem hófst 18. júní sl. frá Rifstanga á Melrakkasléttu hefur m.a. legið yfir Sprengisand en René er nú staddur í Versölum nálægt Svartá. Þangað kom hann eftir um 90km hlaup frá Nýjadal til að sleppa við óveður sem þar geisaði. Áætlað er að hann muni ná að Hrauneyjarlóni á föstudag og yfir helgina „skokki“ hann síðan yfir Fjallabaksleið nyrðri, niður í Hrífunes þaðan sem hann tæki lokahnykkin í hlaupi þessu og hlypi alla leið að Hjörleifshöfða þar sem hlaupinu lýkur n.k. sunnudag.
Að hlaupinu loknu er fyrirhugað er að René kynni þetta magnaða hlaup í máli og myndum fyrir fjölmiðlafólki og öðrum sem áhuga hafa.
Nánari upplýsingar um framvindu hlaupsins veitir Ívar Trausti Jósafatsson í síma 8962266 og á Facebook síðu www.facebook.com/ivar.josafatsson og Facebook síðu Smart Projects.
Ef þú/þið viljið leggja Hollvinum Grensásdeildar
og Íþróttasambandi fatlaðra lið þá er hægt að hringja í þrjú mismunandi
söfnunarnúmer.
Styrktarnúmerin:
908 7997 - 1000 kr.
908 7998 - 2000 kr.
908 7999 - 5000 kr.
Einnig er tekið á móti frjálsum framlögum á bankareikning Hollvina
Grensásdeildar 311-22-000818,
kt. 670406-1210; og
Íþróttasambands fatlaðra 313 – 26- 4396, kt. 620579-0259.
Hér má svo líta skipulag/áætlun René og hvernig henni hefur undið fram: