Opna þýska lokið - Matthildur hljóp með Oliveira!



Opna þýska meistaramótið í frjálsum fór fram um síðastliðna helgi í Berlín þar sem Ísland átti þrjá keppendur. Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir og Arnar Helgi Lárusson komu heim með ný Íslandsmet og Hulda Sigurjónsdóttir var við sinn besta árangur í kringlu, kúlu og spjóti.
 
Matthildur Ylfa lenti í sannkölluðu ævintýri í Berlín því vegna seinkunar og annarra mistaka við skipulagsmál á mótinu þurfti Matthildur að hlaupa 400 metrana í karlaflokki. Þar fann hún sig í hópi með Brasilíumanninum Alan Oliveira sem varð sigurvegari í flokki T 43/44 í 200m hlaupi á Ólympíumótinu í London 2012 þar sem hann lagði m.a. Oscar Pistorius að velli.
 
Oliveira var í stuði í Þýskalandi því hann er í dag orðinn fljótasti íþróttamaðurinn úr röðum fatlaðra er hann kom í mark í 100m hlaupi á tímanum 10,79 sek. Þar með skaut hann Bretanum Jonnie Peacock ref fyrir rass en hann varð þjóðhetja í Bretlandi á Ólympíumótinu í London þegar hann hljóp 100 metrana á 10,85 sek. í flokki T44.
 
Hér að neðan er úrslit íslensku keppendanna í Berlín en myndir, video og nánari fréttir af keppninni má einnig nálgast á Facebook-síðu ÍF
 
Hulda Sigurjónsdóttir - flokkur F og T 20 (þroskahamlaðir)
Kringlukast - 23,63 m.
Kúluvarp - 8,57 m.
Spjótkast - 20,95 m.
 
Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir - flokkur F og T 37 (hreyfihamlaðir)
100m hlaup undanrásir - 15,79 sek.
100m hlaup úrslit - 15,76 sek.
Langstökk - 4,10 m.
200m hlaup - 32,53 sek.
400m hlaup - 75,87 sek. (Íslandsmet)
 
Arnar Helgi Lárusson - flokkur T 53 (hreyfihamlaðir)
100 m. sprettur, undanrásir - 20,14 sek.
100 m. sprettur, úrslit - 19,01 sek. (Íslandsmet)
200 m. sprettur, úrslit - 38,70 sek.
400 m. sprettur, úrslit - 1:22,89 mín.

Mynd/ Íslenski hópurinn á Opna þýska í Berlín um helgina.