Miðasala hafin á HM í sundi



Búið er að opna fyrir miðasölu á HM í sundi fatlaðra sem fram fer í Montreal í Kanada dagana 12.-18. ágúst næstkomandi. Miðasalan fer fram á vefsíðunni http://billets-tickets.montrealipc2013.com

Miðaverð er 17 Kanadadollarar fyrir fullorðna, 11,50 fyrir 18 ára og yngri en fimm ára og yngri fá frían aðgang að mótinu. Nánari upplýsingar um miðaverð er að finna á heimasíðunni hér að ofan.

Ísland mun að sjálfsögðu eiga keppendur á mótinu og verða þeir kynntir til leiks síðar í dag.