Þrjú halda á opna þýska



Þrír frjálsíþróttamenn munu taka þátt í opna þýska meistaramótinu í Berlín á næstu dögum. Í morgun héldu áleiðis til Berlínar þeir Kári Jónsson landsliðsþjálfari og Arnar Helgi Lárusson sem keppa mun í hjólastólakappakstri (e. Wheelchair-racing).

Á morgun leggja þær Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir og Hulda Sigurjónsdóttir af stað en með þeim í för verður Ásta Katrín Helgadóttir þjálfari og meðlimur í frjálsíþróttanefnd ÍF. Matthildur mun keppa í langstökki, 100m, 200m og 400m hlaupi en Hulda keppir í kúluvarpi.

Hægt verður að fá örtíðindi af hópnum á Facebook-síðu ÍF sem finna má hér.

Mynd/ Tomasz Kolodziejski - Hulda Sigurjónsdóttir ætlar sér yfir 9,04m í kúlunni en það er ríkjandi Íslandsmet sem hún setti á EM í Hollandi síðastliðið sumar.