Jón bætti níu ára gamalt met Gunnars



Opna þýska meistaramótið í sundi er hafið í Berlín og í morgun hóf Jón Margeir Sverrisson keppnina með látum þegar hann sett nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 400m fjórsundi. Jón bætti þar níu ára gamalt Íslandsmet sem Gunnar Örn Ólafsson setti í Hong Kong árið 2004. Jón synti á tímanum 5:01,32 mín. en gamla metið var 5:22,34 mín.

Fleiri íslenskir sundmenn eru ytra og nánari frétta að vænta af hópnum á næstu dögum eftir því sem mótinu vindur fram.

Fylgstu með okkur á Facebook