Norræna barna- og unglingamótið fer fram í Danmörku í sumar en mótið er haldið annað hvert ár. Sumarið 2011 fór mótið fram í Finnlandi og 2009 í Svíþjóð. Nú er komið að Dönum að halda mótið sem verður 29. júlí – 3. ágúst. Fjórtán ungmenni verða fulltrúar Íslands á mótinu að þessu sinni. Mótið fer fram í Blavandshuk Kursus og Idrætscenter í Oksbøl í Danmörku en Oksbøl er á Jótlandi í Danmörku skammt frá Billund.
1. Ísar Þorsteinsson – frjálsar – Breiðablik
2. Breki Þórðarson – borðtennis – KR
3. Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir – borðtennis – HK
4. Tinna Rut Andrésdóttir – sund – Óðinn
5. Ari Ægisson – frjálsar – Nes
6. Davíð Þór Torfason – sund – Fjölnir
7. Stefanía Daney Guðmundsdóttir – frjálsar – Eik
8. Guðmundur Ásgeir Grétarsson – sund – Ægir
9. Róbert Salvar Reynisson – sund – Nes
10. Már Gunnarsson – sund – Nes
11. Ástrós Bjarnadóttir – sund – Nes
12. Garðar Smári Helgason – sund – Óðinn
13. Bjarki Guðnason – frjálsar – Nes
14. Róbert Alexander Erwin - sund - Fjörður
15. Þóra María Fransdóttir - sund - Fjörður
Linda Kristinsdóttir formaður frjálsíþróttanefndar ÍF verður aðalfararstjóri í ferðinni en fararstjórnina skipa eftirfarandi:
Linda Kristinsdóttir – aðalfararstjóri
Egill Þór Valgeirsson
Jón Oddur Sigurðsson
Anna Fanney Stefánsdóttir
Ingólfur Guðjónsson
Mynd/ Breki Þórðarson verður á meðal keppenda í Danmörku en hann er ríkjandi Íslandsmeistari í borðtennis í standandi flokki karla, í tvíliðaleik með Kolfinnu Berþóru Bjarnadóttur og einnig er hann Íslandsmeistari í opnum flokki!