Tvö Íslandsmet á fyrsta keppnisdegi í Sheffield



Opna breska sundmeistaramótið fer fram í Sheffield á Englandi þessa dagana. Fyrsti keppnisdagurinn var í gær þar sem tvö ný Íslandsmet litu dagsins ljós. Thelma Björg Björnsdóttir úr ÍFR setti Íslandsmet í 100m skriðsundi á tímanum 1:25,22 mín. en Thelma keppir í flokki S6, flokki hreyfihamlaðra.

Kolbrún Alda Stefánsdóttir úr SH í Hafnarfirði setti svo einnig Íslandsmet í 100m skriðsundi í flokki S14, flokki þroskahamlaðra þegar hún synti 100 metrana á 1:05,91 mín. og fékk fyrir vikið silfurverðlaun í unglingaflokki.

Íslandsmet á fyrsta keppnisdegi í Sheffield

Thelma Björg Björnsdóttir - S6 - 100m skriðsund - 1:25,22 mín.
Kolbrún Alda Stefánsdóttir - S14 - 100m skriðsund - 1:05,91 mín.

Tíðari fréttir af árangri íslensku keppendanna á opna breska má nálgast á Facebook-síðu ÍF

Mynd úr safni/ Kolbrún Alda Stefánsdóttir setti nýtt Íslandsmet í 100m skriðsundi í flokki þroskahamlaðra í gær.