Fjögur félög eignuðst Íslandsmeistara í borðtennis



Keppni á Íslandsmóti ÍF í borðtennis fór fram um síðastliðna helgi. Alls voru fjögur félög sem eignuðust Íslandsmeistara. Keppt var í Íþróttahúsi Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík að Hátúni. Þau Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir og Breki Þórðarson urðu Íslandsmeistarar í sínum flokkum og tvíliðaleik en bæði munu þau taka þátt í Norræna barna- og unglingamótinu sem fram fer í Danmörku í sumar. Þá varð Kolfinna Íslandsmeistari í kvennaflokki annað árið í röð en hún er 14 ára gömul.
 
Jóhann Rúnar Kristjánsson, Nes, lét sig heldur ekki vanta á mótið og varð Íslandsmeistari í sitjandi flokki karla en mátti sætta sig við silfur í opnum flokki og í tvíliðaleiknum.
 
Úrslit mótsins:
 
Kvennaflokkur

1. Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir - HK
2. Áslaug Hrönn Reynisdóttir - ÍFR
3. Hildigunnur Jónína Sigurðardóttir - ÍFR

Standandi karlar

1. Breki Þórðarson - KR
2. Kolbeinn J. Pétursson - Akur
3. Óskar Daði Óskarsson - ÍFR
 
Þroskahamlaðir karlar

1. Stefán Thorarensen - Akur
2. Guðmundur Hafsteinsson - ÍFR
3. Sigurður Andri Sigurðsson - ÍFR
 
Sitjandi karlar
1. Jóhann Rúnar Kristjánsson - NES
2. Hákon Atli Bjarkason - ÍFR
3. Viðar Árnason - KR
 
Tvíliðaleikur
1. Breki Þórðarson og Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir - KR/HK
2. Jóhann Rúnar Kristjánsson og Viðar Árnason - NES/KR
3.-4. Stefán Guðjónsson og Áslaug Hrönn Reynisdóttir - ÍFR
3.-4. Guðmundur Hafsteinsson og Baldur Jóhannesson - ÍFR
 
Opinn flokkur
1. Breki Þórðarson -  KR
2. Jóhann Rúnar Kristjánsson - NES
3.-4. Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir - HK
3.-4. Viðar Árnason - KR

Hér má nálgast úrslit mótsins á pdf-skjali
 
Mynd/ Jón Björn: Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir varð Íslandsmeistari í kvennaflokki á Íslandsmóti ÍF í borðtennis.