Hængsmótið 2013


Hið árlega Hængsmót á Akureyri fer fram föstudaginn 3. maí og laugardaginn 4. maí næstkomandi. Keppnisgreinar verða boccia (einstaklings- og sveitakeppni), borðtennis sem og lyftingar ef nægt þátttaka fæst.

Stefnt er að því að mótið verði sett kl.13.00 og keppni ljúki seinnipart á laugardeginum.  Um kvöldið, væntanlega um kl. 19.00 verður síðan mjög veglegt lokahóf að vanda með veislumat, lifandi tónlist og ýmsum glæsilegum uppákomum.  Miðaverð er áætlað um 5.000,- á mann.

Þátttökutilkynningar þurfa að berast í seinasta lagi föstudaginn 19. apríl. Ekki verður unnt að taka við þátttökutilkynningum eða breyta eftir þann tíma.

Þátttökutilkynninum ber að skila til Jóns Heiðars Árnasonar. Skráningargögn má einnig nálgast hjá Jóni Heiðari.

Netfangið er: jha@raftakn.is