Fimm Íslandsmet hjá Jóni í Hollandi


Swimcup Eindhoven er lokið í Hollandi en Heims- og Ólympíumethafinn Jón Margeir Sverrisson hefur verið síðustu dag við æfingar og keppni þar í landi. Jón Margeir fór mikinn um helgina og setti fimm ný Íslandsmet á mótinu. Jón er væntanlegur aftur til Íslands næsta föstudag en þangað til mun hann æfa með sundlandsliði fatlaðra í Hollandi.

Met Jóns um helgina:

100m skriðsund - 1. sæti og Íslandsmet í bæði undanrásum og úrslitum. Tími: 55,26 sek.

50m flugsund - 2. sæti og Íslandsmet í bæði undanrásum og úrslitum. Tími: 27,66 sek.

50m skriðsund - 1. sæti og Íslandsmet í úrslitum. Tími: 25,30 sek.

Heildarárangur á mótinu:
100m skriðsund - 1. sæti - 2 Íslandsmet (undanrásir/úrslit)
50m flugsund - 2. sæti - 2 Íslandsmet (undanrásir/úrslit)
200m fjórsund - 3. sæti
100m bringusund - 5. sæti
200m skriðsund - 1. sæti
100m flugsund - 2. sæti
400m skriðsund - 1. sæti
50m skriðsund 1. sæti - 1 Íslandsmet (úrslit)

Mynd/ Frá London 2012 þegar Jón Margeir tryggði sér gullið í 200m skriðsundi. Á myndinni má einnig sjá Marc Evers (þessi við hlið náungans með hvítu sundhettuna) en Jón og Marc eru á meðal fremstu sundmanna í flokki þroskahamlaðra í heiminum og æfa þessa dagana saman í Hollandi.