Karen tilnefnd til íþróttakonu ársins í Mosfellsbæ


Sundkonan Karen Axelsdóttir var á dögunum tilnefnd til íþróttakonu ársins 2012 í Mosfellsbæ. Lára Kristín Pedersen hlaut nafnbótina en Karen fékk viðurkenningu við tilefnið og einnig viðurkenningu fyrir Íslandsmet í sundi.

Karen er fædd 5. júlí og æfir með Íþróttafélaginu Ösp. Hennar fötlun er CP sem er algengasta tegund hreyfihömlunar og keppir Karen í flokki S2 í sundi (flokkar S1-S10 eru flokkar hreyfihamlaðra í sundi, þeim mun lægri sem flokkurinn er þeim mun meiri er fötlun viðkomandi íþróttamanns).

Tvisvar sinnum í viku æfir Karen í Lágafellslaug hjá Ösp og einu sinni í viku í sundlauginni í Laugardal. Þjálfarar hennar eru Friðrik G. Sigurðsson og Ingigerður M. Stefánsdóttir. Karen hefur verið í stöðugri framföru undanfarin ár og í dag stefnir hún á að ná lágmörkum til æfinga með landsliðshóp Íþróttasambands fatlaðra.