Keppni á RIG hefst í dag kl. 17


Í dag hefst keppni á RIG, sundi fatlaðra, í Laugardalslaug kl. 17:00. Upphitun mótsins hefst kl. 16:00 en 84 sundmenn eru skráðir til leiks þetta árið. Svíinn Pernilla Lindberg keppir m.a. í mótinu en hún er S14 sundmaður, þroskahömluð, og keppti einnig með góðum árangri á Ólympíumóti fatlaðar í London.

Keppnisdagarnir eru þrír, sá fyrsti í dag en einnig er synt laugardag og sunnudag.
Heildardagksrá mótsins má nálgast hér.
Mótsskránna má nálgast hér