Jón Margeir Íþróttamaður Reykjavíkur 2012


Íþróttamaður Reykjavíkur 2012 er sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson úr Ungmennafélaginu Fjölni.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, afhendi Jóni Margeiri verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða fimmtudaginn 10. janúar síðastliðinn. Hann fékk af þessu tilefni farandbikar sem gefinn er af Reykjavíkurborg ásamt eignarbikar og 200.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Er þetta í 34. sinn sem Íþróttabandalag Reykjavíkur stendur fyrir vali á Íþróttamanni Reykjavíkur.

Jón Margeir varð Ólympíumeistari í 200m skriðsundi á Ólympíumótinu í London í sumar. Jón setti einnig nýtt og glæsilegt heimsmet í þessu sama sundi. Jón setti þrjú heimsmet á árinu auk þess að vinna til margra verðlauna í hinum ýmsu sundgreinum á mótum erlendis. Hann er einnig margfaldur Íslandsmeistari árið 2012.

Tíu aðrir afreksmenn fengu einnig viðurkenningu fyrir árangur sinn á árinu 2012 í Höfða sem afhendar voru af formanni Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvari Sverrissyni. Íþróttamennirnir eru þau:

    •    Aníta Hinriksdóttir, Íþróttafélagi Reykjavíkur
    •    Anton Sveinn McKee, Sundfélaginu Ægi
    •    Ásdís Hjálmsdóttir, Glímufélaginu Ármanni
    •    Ásgeir Sigurgeirsson, Skotfélagi Reykjavíkur
    •    Einar Daði Lárusson, Íþróttafélagi Reykjavíkur
    •    Eygló Ósk Gústafsdóttir, Sundfélaginu Ægi
    •    Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Knattspyrnufélaginu Val
    •    Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur
    •    María Guðsteinsdóttir, Glímufélaginu Ármanni
    •    Þormóður Jónsson, Júdófélagi Reykjavíkur

Öll hlutu þau 50.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og viðurkenningarskjöld.

Mynd og frétt af ibr.is