Kolbrún vann sjómannabikarinn þriðja árið í röð


Um eitthundrað börn frá átta aðildarfélögum fatlaðra tóku þátt í Nýárssundmóti Íþróttasambands fatlaðra í dag. Þetta var í þrítugasta sinn sem mótið fer fram en það var sundkonan Kolbrún Alda Stefánsdóttir frá Firði/SH sem vann Sjómannabikarinn þriðja árið í röð. Árangurinn færir Kolbrúnu bikarinn til eignar en hún hlaut 679 stig fyrir frammistöðu sína í 50m skriðsundi.

Skólahljómsveit Kópavogs lék venju samkvæmt fyrir mótsgesti í upphitun og Sveinn Áki Lúðvíksson setti mótið og afhenti það síðar Kristínu Guðmundsdóttur mótsstjóra. Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur afhenti keppendum þátttökuverðlaun í mótslok og Kolbrúnu sjálfan Sjómannabikarinn. Skátar frá Skátafélaginu Kópum stóðu heiðursvörð við mótið en það gefur mótinu skemmtilegan blæ í bland við ljúfa tóna Skólahljómsveitarinnar úr Kópavogi.

Mynd/ Kolbrún Alda Stefánsdóttir með Sjómannabikarinn 2013 en hún hefur nú unnið hann sér til eignar þar sem hún hefur unnið þrjú ár í röð.