Jón Margeir þriðji í kjörinu á Íþróttamanni ársins


Handknattleiksmaðurinn Aron Pálmarsson er Íþróttamaður ársins 2012. Kjörinu var lýst þann 29. desember síðastliðinn. Frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir varð önnur og í þriðja sæti hafnaði Jón Margeir Sverrisson sundmaður hjá Fjölni.

Svona leit topp 10 listinn út í stigum gefið:

1. Aron Pálmarsson, handbolti - 425 stig.
2. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir - 279
3. Jón Margeir Sverrisson, íþróttir fatlaðra - 267
4. Gylfi Sigurðsson, fótbolti - 149
5. Þóra B. Helgadóttir, fótbolti - 122
6. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar - 74
7. Alfreð Finnbogason, fótbolti - 65
8. Ásgeir Sigurgeirsson, skotfimi - 61
9. Íris Mist Magnúsdóttir, fimleikar - 58
10. Kári Steinn Karlsson, frjálsíþróttir - 55

Íþróttasamband fatlaðra óskar íþróttafólkinu innilega til hamingju með útnefningarnar.

Mynd/ Eva Björk Ægisdóttir