Nýárssundmót fatlaðra barna laugardaginn 5. janúar 2013


Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fer fram fyrstu helgi í janúar ár hvert. Mótið fer fram í 25 m laug.  Þátttökurétt á mótinu eru þeir sem eru 17 ára á árinu eða yngri.
Mótið fer fram í Laugardalslaug í Reykjavík laugardaginn 5. janúar 2013 og hefst kl. 15:00. Upphitun hefst kl. 14:00
 
Keppt skal í eftirtöldum greinum:
50 m baksund                    50 m bringusund
50 m flugsund                    50 m frjáls aðferð
25 m frjáls aðferð*
*25 m frjáls aðferð er fyrir byrjendur þar eru hjálpartæki leyfð, þ.e. armkútar, sundfit
o.s.frv.
Einungis þeir sem ekki keppa í öðrum greinum mótsins hafa rétt til þátttöku.
 
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

1. grein 50 m baksund kk 2. grein 50 m baksund kvk
3. grein 50 m bringusund kk 4. grein  50 m bringusund kvk
5. grein  25 m frjáls aðferð kk 6. grein  25 m frjáls aðferð kvk
7. grein  50 m frjáls aðferð kk 8. grein  50 m frjáls aðferð kvk
9. grein  50 m flugsund kk 10. gein  50 m flugsund kvk
 
Í mótslok fá allir þátttakendur viðurkenningu (þátttökupening).
Í 50 metra greinum eru veitt verðlaun gull, silfur og brons samkvæmt stigaútreikningi
miðað við stigaformúlu ÍF.
Sjómannabikarinn er veittur fyrir besta sundafrek mótsins samkvæmt stigaútreikningi.
 
Sjómannabikarinn.
Sigmar Ólason, sjómaður á Reyðarfirði gaf bikar til keppninnar árið 1984 þegar fyrsta
Nýarssundmótið fór fram.
 
Heiðursgestur.
Í tengslum við Nýarssundmótið hefur skapast sú hefð að bjóða sérstökum heiðursgesti,
sem í mótslok afhendir öllum þátttakendum viðurkenningu og sigurvegaranum “
Sjómannabikarinn”. Heiðursgestur mótsins 2013 er borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr.

Nánari upplýsingar um mótið og skráningu má fá í síma 514 4080 eða á if@isisport.is