Jón Margeir og Matthildur Ylfa Íþróttafólk ársins 2012



Matthildur fyrst frjálsíþróttakvenna

Jón Margeir Sverrisson er íþróttamaður ársins úr röðum fatlaðra 2012 og Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir er íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra. Jón Margeir og Matthildur eiga glæsilegt íþróttaár að baki en Jón vann til gullverðlauna á Ólympíumóti fatlaðra í London og Matthildur tók þátt í úrslitum í langstökki á Ólympíumótinu. Þetta er þriðja árið í röð sem Jón er útnefndur Íþróttamaður ársins en í fyrsta sinn sem Matthildur Ylfa verður íþróttakona ársins. Jón Margeir er sundmaður hjá Fjölni en Matthildur Ylfa er frjálsíþróttakona hjá ÍFR og æfir einnig sund af miklu kappi.

Þetta mun vera í fyrsta sinn síðan árið 2006 sem frjálsíþróttamaður hlýtur þessa útnefningu en það ár var Jón Oddur Halldórsson kjörinn íþróttamaður ársins. Matthildur Ylfa er einnig fyrsta frjálsíþróttakonan í sögu íþrótta fatlaðra á Íslandi sem verður íþróttakona ársins. Aðeins sund, bogfimi og vetraríþróttir hafa átt íþróttakonu ársins til þessa.

Nánar um árangur Jón Margeirs á árinu 2012

Nánar um árangur Matthildar Ylfu á árinu 2012

Íþróttamenn ársins hjá ÍF frá upphafi:

2012 Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, ÍFR (frjálsar íþróttir) og Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir (sund)
2011
 Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Fjörður (sund) og Jón Margeir Sverrisson, Ösp/Fjölnir (sund)
2010 Erna Friðriksdóttir, Höttur Eglisstöðum (vetraríþróttir) og Jón Margeir Sverrisson, Ösp (sund)
2009 Sonja Sigurðardóttir, ÍFR (sund) og Eyþór Þrastarson, ÍFR (sund)
2008 Sonja Sigurðardóttir, ÍFR (sund) og Eyþór Þrastarson, ÍFR (sund)
2007 Karen Björg Gísladóttir, Fjörður (sund) og Jóhann Rúnar Kristjánsson, Nes (borðtennis)
2006 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Jón Oddur Halldórsson, Reynir Helliss. (frjálsar íþróttir)
2005 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Jón Oddur Halldórsson, Reynir Helliss. (frjálsar íþróttir)
2004 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Gunnar Örn Ólafsson, Ösp (sund)
2003 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Jón Oddur Halldórsson, Reynir Helliss. (frjálsar íþróttir)
2002 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Gunnar Ö. Ólafsson, Ösp (sund)
2001 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Bjarki Birgisson, ÍFR (sund)
2000 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Einar Trausti Sveinsson, Kveldúlfi  (frjálsar íþróttir)
1999 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Geir Sverrisson, Ármanni (frjálsar íþróttir)
1998 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund) og Pálmar Guðmundsson, ÍFR (sund) 
1997 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund)
1996 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund)
1995 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR (sund)
1994 Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp (sund)
1993 Geir Sverrisson, Ármanni (frjálsar íþróttir)
1992 Ólafur Eiríksson, ÍFR (sund)
1991 Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp (sund)
1990 Ólafur Eiríksson, ÍFR (sund)
1989 Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp (sund)
1988 Haukur Gunnarsson, ÍFR (frjálsar íþróttir)
1987 Haukur Gunnarsson, ÍFR (frjálsar íþróttir)
1986 Haukur Gunnarsson ÍFR (frjálsar íþróttir)
1985 Ína Valsdóttir, Ösp (sund)
1984 Jónas Óskarsson, Völsungi (sund)
1983 Sigurður Pétursson Ösp (sund)
1982Elísabeth Vilhjálmsdóttir, ÍFR (bogfimi)
1981 Arnór Pétursson, ÍFR (lyftingar)
1980 Sigurrós Karlsdóttir, Akur (sund)
1979 Edda Bergmann, ÍFR (sund)
1978 Arnór Pétursson, ÍFR (lyftingar)
1977 Hörður Barðdal, ÍFR (sund)

Mynd/ Matthildur Ylfa og Jón Margeir á Radisson Blu Hóteli Sögu í dag þar sem kjörið var kunngjört.