Frjálsíþróttakynning fyrir 8-12 ára börn


Fimmtudaginn 6. desember næstkomandi mun Frjálsíþróttanefnd ÍF standa að frjálsíþróttakynningu í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Kynningin hefst kl. 16:00 og er fyrir börn sem eru aflimuð og eða með CP. Landsliðsþjálfari ÍF, Kári Jónsson og Ásta Katrín Helgadóttir aðstoðarlandsliðsþjálfari munu stýra kynningunni en þau voru m.a. þjálfarar Ísland á Ólympíumóti fatlaðra í London þar sem Helgi Sveinsson og Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir náðu bæði frábærum árangri.
 
ÍF hvetur foreldra og forráðamenn viðkomandi barna til að fjölmenna á kynninguna og njóta þar leiðsagnar tveggja af fremstu frjálsíþróttaþjálfara landsins úr röðum fatlaðra.