Myndasafn frá Íslandsmótinu á Ísafirði


Nú er komið inn myndasafn á myndasíðu ÍF en þar er að finna myndir frá Íslandsmóti ÍF í einstaklingskeppni í boccia. Mótið var í öruggum höndum Ívars á Ísafirði og fór einstaklega vel fram. Arnþór Jónsson formaður Ívars sleit svo mótinu á glæsilegu lokahófi sem fram fór í Bolungarvík þar sem enginn annar en sjálfur Mugison stakk inn nefinu.

Á mótinu sáust nokkur glæsileg tilþrif og varð Haukur Gunnarsson Íslandsmeistari í 1. deild en kappinn var hreinlega í fantaformi og andstæðingar hans komu vart að stigi svo heitur var ,,Haukurinn."

Mugipapa eða Guðmundur Kristjánsson var veislustjóri á lokahófinu og Benni Sig. ásamt hljómsveit héldu uppi fjörinu til miðnættis í Bolungarvík.

Vel gert Ísfirðingar!

Myndasafn frá mótinu

Mynd með frétt/ Jónas L. Sigursteinsson t.v. hafði í mörg horn að líta um helgina og fór létt með fjölmörg verk enda fjölhæfur með eindæmum. Sessunautur hans, Haukur Þorsteinsson, er formaður Eikar á Akureyri og hefur séð þau ófá boccia-mótin.