Öll innkoma vegna viðburðarins rennur til Íþróttasambands fatlaðra. Verð er 3.900 krónur fyrir fullorðna, 1.950 krónur fyrir 7-12 ára börn. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Boðskort í Bláa Lónið er innifalið í verði fyrir þá sem bóka fyrir kl. 16.00 föstudaginn 28. september.
Ólympíufararnir verða á staðnum og söngkonan vinsæla, Bríet Sunna, mun flytja nokkur lög.
Bláa Lónið og Íþróttasamband fatlaðra gerðu með sér samstarfssamning fyrir Ólympíumót fatlaðra í London í sumar. Samningurinn er til fjögurra ára og gildir fram yfir Ólympíumót fatlaðra í Ríó 2016.
Bókanir í síma 420 8800 eða sales@bluelagoon.is - en aðgöngumiðinn í Bláa Lónið fylgir með bókuninni ef gengið er frá bókun fyrir kl. 16:00 föstudaginn 28. september.