Jón Margeir tólfti Íslendingurinn sem vinnur gull á Ólympíumóti


Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson varð í London tólfti íslenski íþróttamaðurinn úr röðum fatlaðra til að vinna til gullverðlauna á Ólympíumóti. Jón Margeir, eins og frægt er orðið, vann til gullverðlauna í 200m skriðsundi í flokki S14, flokki þroskahamlaðra.
 
Á 32 árum eða frá árinu 1980 hefur Ísland unnið alls 37 gullverðlaun á Ólympíumótum fatlaðra og flest þeirra eða níu talsins vann Sigrún Huld Hrafnsdóttir á Ólympíumóti þroskahamlaðra í Madríd á Spáni árið 1992.
 
Listi yfir þá íþróttamenn sem unnið hafa til gullverðlauna á Ólympíumótum fatlaðra
 
Sigurrós Karlsdóttir - 1980
Haukur Gunnarsson - 1988
Lilj M. Snorradóttir - 1988
Geir Sverrisson - 1992
Ólafur Eiríksson - 1992/1996
Sigrún H. Hrafnsdóttir - 1992
Guðrún Ólafsdóttir - 1992
Bára B. Erlingsdóttir - 1992
Katrín Sigurðardóttir - 1992
Kristín Rós Hákónardóttir - 1996/2000/2004
Pálmar Guðmundsson - 1996
Jón Margeir Sverrisson - 2012
 
Ísland hefur unnið til samtals 98 verðlauna á Ólympíumótum fatlaðra frá árinu 1980. All eru gullverðlaunin orðin 37 talsins, 19 silfurverðlaun og 42 bronsverðlaun.
 
Mynd/ Jón Margeir með gullverðlaunin í London fyrir sigurinn í 200m skriðsundinu.