Heildarárangur Íslands á Ólympíumóti fatlaðra


Í gær lauk Ísland þátttöku sinni á Ólympíumóti fatlaðra í London þegar Helgi Sveinsson hafnaði í 5. sæti í spjótkasti í flokki T42. Íslenska sveitin kemur heim til Íslands á mánudag með ein gullverðlaun, heimsmet og átta Íslandsmet í farteskinu.

Frjálsar:

Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, flokkur F og T 37 (flokkur spastískra)


Langstökk: 8. sæti - 4,08 metrar.
- keppti í 8 kvenna úrslitum
- næst besti árangur hennar í alþjóðlegri keppni

100m hlaup: 15. sæti - 15,89 sek.
- jafnaði sinn besta alþjóðlega árangur

200m hlaup: 13. sæti - 32,16 sek
- nýtt Íslandsmet

Helgi Sveinsson, flokkur F og T 42 (flokkur aflimaðra/skert fótafærni)

Langstökk: 10. sæti - 4,25 metrar
- töluvert frá sínum besta árangri sem er 5,32 metrar

100m hlaup: 11. sæti - 16,64 sek
-töluvert frá sínum besta árangri sem er 14,82 sek

Spjótkast: 5. sæti - 47,61 metrar
- nýtt Íslandsmet
- heimsmet sett í keppninni - 52,79 metrar (Fu Yanlong frá Kína)

Sund:

Kolbrún Alda Stefánsdóttir, flokkur S14 (flokkur þroskahamlaðra)


100m baksund: 14. sæti - 1:21,61 mín
- annar besti árangur Kolbrúnar í alþjóðlegri keppni

200m skriðsund: 12. sæti - 2:24,57 mín
- nýtt Íslandsmet í 100m og 200m skriðsundi
- gamla metið var 2.28,77 mín

100m bringusund: 14. sæti - 1:30,58 mín
- annar besti árangur Kolbrúnar í alþjóðlegri keppni

Jón Margeir Sverrisson, flokkur S14 (flokkur þroskahamalaðra)

100m baksund: 17. sæti - 1:10,72 mín
-bætti persónulegan árangur sinn um tæpar tvær sekúndur, Íslandsmet Gunnars Arnar Ólafssonar stendur því enn óhaggað. Marc Evers setti svo nýtt heimsmet í greininni 1.01,85 mín.

200m skriðsund: 1. sæti - gullverðlaun - 1:59,62 mín.
- Íslandsmet, Evrópumet, Heimsmet og Ólympíumótsmet sem standa mun næstu fjögur árin eða þangað til Ólympíumótið í Ríó fer fram og mögulega lengur!
- fyrstu gullverðlaun Íslands á Ólympíumóti síðan árið 2004
- einnig var þetta met á millitíma hjá Jóni, þ.e. í 100m skriðsundi

100m bringusund: 11. sæti - 1:13,91 mín
- setti nýtt Íslandsmet í 50m og 100m bringusundi

Mynd/ JBÓ: Forsetahjónin Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit Moussaieff heimsóttu íslenska hópinn í Ólympíumótsþorpið að keppni lokinni föstudaginn 7. september síðastliðinn.