Matthildur lauk keppni í London á nýju Íslandsmeti


Frjálsíþróttakonan Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir hefur lokið þátttöku sinni á Ólympíumóti fatlaðra í London en í morgun setti hún nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 200m hlaupi í flokki T37 sem er flokkur spastískra. Matthildur kom þá í mark á tímanum 32,16 sek. og bætti þar Íslandsmetið sitt um 1,6 sekúndu!

Matthildur náði ekki inn í úrslit í hlaupinu en síðasti tíminn inn í úrslit var 30,56 sek. en hún hefur þó heldur betur saxað á þær fremstu og eflaust ekki langt að bíða eftir því að hún fari að anda ofan í hálsmál þeirra.

Ef við tökum saman árangur Matthildar hér í London þá hafnaði hún í 8. sæti í langstökki þar sem hún komst í úrslit og stökk lengst 4,08 metra sem var hennar næstlengsta stökk á alþjóðlegu móti þetta árið. Íslandsmet hennar stendur þó enn óhaggað í 4,28 metrum.

Í 100 m hlaupi jafnaði Matthildur Íslandsmetið sitt á 15,89 sekúndum og hafnaði í 15. sæti og í 200 m hlaupinu í dag setti hún eins og áður segir nýtt Íslandsmet og hafnaði í 13. sæti.

Glæsilegur árangur hjá Matthildi sem 15 ára gömul hefur lokið þátttöku á sínu fyrsta Ólympíumóti.

Viðtal við Matthildi hjá Morgunblaðinu

Mynd/ Heiða: Matthildur hristi af sér hina írsku Heather Jameson í 200m hlaupinu en Jameson hafði nauma sigra á Matthildi í langstökkinu og 100 m hlaupinu og var Matthildur staðráðin í því að missa ekki jafnöldru sína framúr sér í 200 metrunum í dag.