Jón og Kolbrún í 200m skriðsundi í dag


Annar keppnisdagur íslenska hópsins er runninn upp hér á Ólympíumóti fatlaðra í London. Komið er að 200 metra skriðsundinu hjá Jóni Margeiri og Kolbrúnu Öldu og þá keppir Matthildur Ylfa í 100 metra hlaupi.

Jón Margeir stígur fyrstur á stokk í undanrásum en 200 m skriðsund karla í flokki S14 hefst kl. 08:54 að íslenskum tíma. Jón syndir í öðrum riðli á fimmtu braut við hlið Kóreumannsins Wonsang Cho sem skráður er inn með tímann 2:00,75 mín. en Jón er skráður inn á tímanum 2:01,56 mín. sem er Íslandsmetið í greininni.

Keppni í 200 m skriðsundi kvenna í flokki S14 hefst svo kl. 09:07 og syndir Kolbrún Alda í öðrum riðli á braut sjö. Kolbrún Alda er skráð inn á mótið með tímann 2:28,77 mín. og þarf hún að bæta þann tíma allverulega ætli hún sér að ná inn í úrslit í kvöld.

Í 100m hlaupi kvenna hefst keppnin kl. 10:05 þar sem Matthildur Ylfa hleypur á þriðju braut en hún er skráð inn með tímann 15,89 sek. og rétt eins og hjá Kolbrúnu Öldu þarf Matthildur að bæta þann tíma til þess að eiga möguleika á því að komast í úrslit.

Mynd/ Íslenski hópurinn fékk góða heimsókn í gær þegar velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson heimsótti Ólympíumótsþorpið.