Jón Margeir fór í úrslit á nýju Íslandsmeti - Kolbrún tólfta með tvö met!


Jón Margeir Sverrisson tryggði sér sæti í úrslitum í 200m skriðsundi á Ólympíumóti fatlaðra í dag þegar hann synti á nýju og glæsilegu Íslandsmeti í flokki S14. Jón kom í bakkann á 2:00,32 mín. sem var einnig Ólympíumótsmet en það lifði skamma stund því það bætti Ástralinn Daniel Fox á tímanum 2:00,11 mín.

Baráttan verður svakaleg nú seinni partinn þegar úrslitin fara fram en tveir breskir sundmenn verða í úrslitum og því viðbúið að kjaftfullt verði í höllinni.

Tímar Jóns og ,,split"
50m - 27,79 sek - 27,79 sek
100m - 57,73 sek - 29,94 sek
150m - 1:29,08 mín - 31,35 sek
200m - 2:00,32 mín - 31,24 sek (Íslandsmet)

Jón var því með næstbesta tímann inn í úrslitin í kvöld á eftir Fox en ekki langt á eftir Jóni kom Kóreumaðurinn Wonsang Cho á 2:00,47 mín. Úrslitin í dag hefjast kl. 17:48 að breskum tíma eða kl. 16:48 að íslenskum tíma.

Kolbrún Alda Stefánsdóttir var næst á svið strax á eftir Jóni og stórbætti hún Íslandsmetið sitt í 200m skirðsundi í flokki S14 er hún kom í bakkann á tímanum 2:24,57 mín. Metið bætti Kolbrún um rúmar fjórar sekúndur en það hafði staðið frá því á Íslandsmótinu í mars fyrr á þessu ári. Þá setti hún einnig nýtt met í 100m skriðsundi þegar millitími hennar var 1:08,82 sek.

Kolbrún hafnaði í 12. sæti af 21 keppanda og náði því ekki inn í úrslit en bætti persónulegan árangur sinn gríðarlega og Íslandsmetið líka.

Tímar Kolbrúnar og ,,split"

50m - 32,99 sek - 32,99 sek
100m - 1:08,82 sek - 35,83 sek (Íslandsmet)
150m - 1:46,75 sek - 37,93 sek
200m - 2:24,57 sek - 37,82 sek (Íslandsmet)

Myndir/ Jón Margeir fagnar Íslandsmeti sínu og Ólympíumótsmetinu í undanrásum í morgun. Hér á neðri myndinni er Kolbrún Alda Stefánsdóttir á ferðinni einnig í undanrásum.