Matthildur áttunda í langstökki - Jón og Kolbrún komust ekki í úrslit


Ísland hefur hafið keppni á Ólympíumóti fatlaðra en í morgun varð frjálsíþróttakonan Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir fyrst íslensku keppendanna til að láta að sér kveða. Matthildur komst þá í úrslit og náði næstbesta stökki sínu þetta árið á alþjóðlegu móti.

Fyrsta stökkið hjá Matthildi í dag var ógilt en hún gerði svo gilt í öðru stökki og stökk 3,63 metra. Sú lengd dugði ekki til að komast inn í úrslit svo pressan í þriðja stökkinu var mikil hjá þessari ungu frjálsíþróttakonu því eftir þrjú stökk var skorið niður í átta kvenna úrslit. Þriðja stökkið hjá Matthildi reyndist 4,07 metrar og dugði það inn í áttunda og síðasta sætið í úrslitum.

Í átta kvenna úrslitum stökk Matthildur sitt fjórða stökk sem var 3,83 metrar en hennar fimmta stökk reyndist það lengsta er hún stökk 4,08 metra. Sjötta og síðasta stökkið var 4,03 metrar svo Matthildur gerði fimm stökk gild af sex mögulegum. Fimmta stökkið sem var 4,08 metrar er það næstlengsta sem Matthildur hefur náð í alþjóðakeppni en fyrr á þessu ári stökk hún 4,10 metra í Túnis.

Viðtal við Matthildi eftir langstökkskeppnina

Tæpum klukkutíma eftir að Matthildur hóf keppni í langstökki voru sundmennirnir Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir að gera sig klár í keppni í 100m baksundi.

Jón reið á vaðið í sundinu og kom í undanrásum í bakkann á tímanum 1.10,72 mín og bætti sinn besta persónulega árangur um tæpar tvær sekúndur. Íslandsmet Gunnars Arnar Ólafssonar frá árinu 2003 í flokki S14 stendur því enn óhaggað. Jón hafnaði í 17. sæti í baksundinu.

Skömmu eftir að Jón hafði lokið keppni var röðin komin að Kolbrúnu Öldu Stefánsdóttur en hún var alveg við sinn besta tíma þegar hún synti á 1:21,61 mín. og hafnaði í 14. sæti í 100m baksundi í flokki S14.

Þessum fyrsta keppnisdegi íslenska hópsins er hvergi nærri lokið því Helgi Sveinsson keppir í kvöld í flokki F42/44 í langstökki en þessir tveir flokkar keppa saman í forgjafarkeppni þar sem stig út frá heimsmeti eru reiknuð við hvert stökk. Keppnin hjá Helga hefst kl. 19:20 hér að breskum tíma eða kl. 18:20 að íslenskum tíma.

Myndir: Á efri myndinni er Matthildur Ylfa í langstökkskeppninni í dag frammi fyrir 80.000 áhorfendum en á þeirri neðri leggur Jón Margeir Sverrisson af stað í 100m baksundi fyrir fram 17.500 áhorfendur.