Íslensku keppendurnir hefja allir leik á morgun



Keppni á Ólympíumóti fatlaðra hófst í London í dag og er mikið við að vera í borginni enda setur mótið sterkan svip á daglegt líf þeirra rúmlega átta milljóna sem hér búa. Íslensku keppendurnir hefja allir leik á morgun og er það Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir sem ríður á vaðið kl. 10:08 að enskum tíma eða kl. 09:08 að íslenskum tíma.

Matthildur keppir í flokki F37 í langstökki en á Ólympíumótinu munu flokkar F37 og F38 keppa í stigakeppni svo alls eru 12 langstökkvarar skráðir til leiks.

Sundfólkið Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir eru næst á svið á eftir Matthildi á morgun en þau keppa bæði í flokki S14, flokki þroskahamlaðra. Þau keppa í 100m baksundi á morgun þar sem Jón verður í öðrum riðli en fyrsti riðill syndir kl. 10:07 að íslenskum tíma. Rétt rúmum tíu mínútum síðar er komið að Kolbrúnu Öldu en hún syndir í fyrsta riðli.

Helgi Sveinsson lokar svo deginum fyrir Íslands hönd annað kvöld þegar hann keppir í langstökki í flokki F42/44 en þessir tveir fötlunarflokkar keppa saman í stigakeppni líkt og í langstökkinu hjá Matthildi. Alls eru 11 skráðir til leiks í langstökkinu hjá Helga og er hann annar í stökkröðinni.

Mynd/ Frjálsíþróttakonan Matthildur Ylfa var kát við opnunarhátíð Ólympíumótsins í gær.